UNICEF á Íslandi

UNICEF er leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum. Við berjumst fyrir réttindum allra barna og sinnum bæði langtímauppbyggingu og neyðaraðstoð. Við erum á vettvangi í yfir 190 löndum og höfum að leiðarljósi að börn njóti velferðar – hvar sem þau er að finna. Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fæðast öll börn með ófrávíkjanleg réttindi. Hins vegar fá ekki öll börn notið þeirra. Þessu viljum við breyta. UNICEF trúir því að heilbrigð barnæska og mannsæmandi líf séu réttur allra barna.

Fylgstu með okkur á samfélagsmiðlum!